Varnarmaðurinn Nacho Gil er genginn í raðir Selfoss en hann kemur til félagsins frá Vestra.
Vestri leikur í Bestu deildinni eða efstu deild en Selfoss er í 2. deild og er að berjast um að komast upp.
Selfoss hefur verið besta lið deildarinnar á tímabilinu og er á toppnum með tveggja stiga forskot eftir tíu leiki og á einnig leik til góða.
Um er að ræða miðjumann sem er fæddur 1993 en hann hefur leikið á Íslandi í rúmlega sex ár.
Bjarni Jóhannesson er þjálfari Selfoss og þekkir til leikmannsins en þeir unnu saman hjá Vestra um tíma.