Jack Grealish, leikmaður Manchester City og kærasta hans Sasha Attwood eiga von á sínu fyrsta barni. Þau greindu frá þessu á samfélagsmiðum í gær.
Parið hefur verið saman frá því þau voru unglingar. Samband þeirra hefur þó stundum verið talið stormasamt, en Grealish er þekktur glaumgosi og oft komið sér í klandur fyrir mál utan vallar.
„Besta gjöf lífsins,“ skrifaði hinn 28 ára gamli Grealish er hann tilkynnti fréttirnar.
Sem fyrr segir er Grealish á mála hjá Englandsmeisturum Manchester City. Hann átti þó ekki sitt besta tímabil og var ekki valinn í enska landsliðshópinn fyrir EM sem nú stendur yfir í Þýskalandi.
Prófaðu að endurhlaða síðuna ef færslan birtist ekki
View this post on Instagram