Það virðist sem svo að sóknarmaðurinn Jack Grealish ætli svo sannarlega að minna á sig á næstu leiktíð.
Grealish fékk sorgarfréttir fyrir um mánuði síðan er honum var tilkynnt að hann væri ekki í landsliðshópi Englands á EM í Þýskalandi.
Margir voru ósáttir með þá ákvörðun en Grealish átti þó ekki sitt besta tímabil með Manchester City.
Grealish hefur alls ekki nýtt sumarfríið illa og virkar í frábæru standi tæplega mánuði áður en enska úrvalsdeildin hefst á ný.
Hann hefur fengið mikið hrós fyrir ákveðinn aga í sumarfríinu en hann hefur ferðast til landa eins og Dúbaí og Ítalíu.
Myndina má sjá hér.