Útlitið er ansi svart hjá Dalvík/Reyni í Lengjudeild karla þessa dagana en 11 umferðir eru búnar í sumar.
Þróttur Reykjavík vann öruggan 4-1 sigur á nýliðunum í dag sem sitja í neðsta sæti með sjö stig.
Þróttur var að vinna sinn annan leik í röð og er nú aðeins fjórum stigum frá umspilssæti.
Fyrr í dag var spilað í Vestmannaeyjum þar sem ÍBV vann lið Leiknis 1-0.
Þróttur R. 4 – 1 Dalvík/Reynir
0-1 Áki Sölvason
1-1 Kári Kristjánsson(víti)
2-1 Hlynur Þórhallsson
3-1 Kári Kristjánsson
4-1 Hlynur Þórhallsson
ÍBV 1 – 0 Leiknir R.
1-0 Vicente Martinez