Fjölmargir enskir fjölmiðlar fullyrða það að England ætli að gera breytingar fyrir leik gegn Sviss í dag.
Um er að ræða leik á EM en Gareth Southgate ætlar að breyta í fimm manna varnarlínu að þessu sinni.
Kyle Walker færist í hafsentinn og mun Bukayo Saka sinna hlutverki vængbakvörðs vinstra megin.
Ezri Konsa kemur einnig inn í liðið og spilar í miðverði í stað Marc Guehi sem tekur út leikbann.
Byrjunarliðið má sjá hér.