Holland 2 – 1 Tyrkland
0-1 Samet Akaydin(’35)
1-1 Stefan de Vrij(’70)
1-2 Mert Muldur(’76, sjálfsmark)
Holland er komið í undanúrslit HM eftir nokkuð spennandi leik við Tyrkland í kvöld.
Um var að ræða síðasta leikinn í 8-liða úrslitum mótsins en Tyrkland komst yfir í fyrri hálfleik.
Samet Akaydin skoraði sitt fyrsta landsliðsmark með skalla og voru þeir tyrknensku lengi með forystuna.
Holland kom þó sterkt til leiks í seinni hálfleik en Stefan de Vrij jafnaði metin áður en Tyrkir skoruðu í eigið net.
De Vrij skoraði fyrst með skalla áður en Mert Muldur varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Tyrkir fengu mjög góð marktækifæri eftir að Holland komst yfir en mistókst að koma boltanum í netið.
Ljóst er að Holland mun því spila við England í undanúrslitum keppninnar.