Jaden Philogene, leikmaður Hull, fer sennilega ekki til Barcelona eftir allt saman.
Þessi 22 ára gamli kantmaður var mjög óvænt orðaður frá B-deildarliðinu við stórlið Barcelona á láni með kaupskyldu að lánssamningi loknum upp á 16-19 milljónir punda.
Það verður hins vegar sennilega ekkert af skiptunum þangað því Philogene vill heldur fara í ensku úrvalsdeildina. Þar hafa Crystal Palace, Everton og Ipswich öll áhuga á honum.
Philogene átti frábæra leiktíð í B-deildinni, skoraði 12 mörk og lagði upp sex til viðbótar.
🚨🏴 EXCL: Jaden Philogene’s move to Barcelona looks now complicated and unlikely as he’s giving priority to Premier League move.
Understand three clubs have sent him proposals: Crystal Palace, Ipswich Town, Everton.
Decision expected soon. pic.twitter.com/FnhcGDRn9D
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 3, 2024