Lionel Messi klikkaði óvænt á vítaspyrnu í Copa America í nótt. Það kom þó ekki að sök.
Argentína mætti þá Ekvador í 16-liða úrslitum. Það stefndi í 1-0 sigur þeirra í venjulegum leiktíma þökk sé marki Lisandro Martinez en liðið fékk á sig dramatískt jöfnunarmark í restina.
Það var farið í vítaspyrnukeppni og þar klikkaði Messi á fyrstu spyrnunni.
Það kom þó ekki að sök því Argentínumenn unnu vítaspyrnukeppnina 4-2.
Viðbrögð markvarðar Ekvador, Alexander Dominguez, hafa vakið nokkra athygli en hann fór beint í það að hughreysta Messi í stað þess að fagna klúðri hans.
MESSI MISSES THE FIRST PENALTY KICK 😱😱😱#CopaAmerica2024 #ARGECU pic.twitter.com/uLsn8H99c2
— Stadium Astro 🇲🇾 (@stadiumastro) July 5, 2024