Jan Vertonghen varnarmaður belgíska landsliðsins hefur lagt skóna á hilluna með landsliðinu eftir magnaðan feril.
Vertonghen spilaði 157 leiki fyrir Belgíu á farsælum ferli sínum en síðasti leikurinn var gegn Frakklandi í 16 liða úrslitum EM.
„Takk öll, ég fékk tækifæri til að lifa drauminn,“ sagði Vertonghen.
Vertonghen er 37 ára gamall en hann er nú mættur heim til Belgíu og spilar með Anderlecht.
Hann lék á ferli sínum með Ajax, Tottenham og Benfica og gerði vel en hættir nú með landsliðinu.
🚨🇧🇪 Jan Vertonghen has decided to retire from international football.
He won’t play for Belgium anymore after 157 apps: “Thank you, I had the chance to live my dream”. pic.twitter.com/HczHtP4V3y
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 5, 2024