Hann ræðir þetta í Fyrsta sætinu á mbl.is, en bæði Laugardalsvöllur og Laugardalshöll eru á undanþágu frá Alþjóðlegu sérsamböndunum.
„Mér finnst það leitt og þetta er okkur ekki til sóma,“ segir Guðni.
Hann segir þá staðreynd blasa við að verði ekki ráðist í framkvæmdir muni íslensk landslið þurfa að spila heimaleiki á erlendri grundu.
„Viðkvæðið verður oft hvar við ætlum að taka peninginn til þess að setja í þessa uppbyggingu en við getum alveg horft til þess að stórar fjárhæðir hafa verið settar í nýbyggingar á síðustu árum eins og Hörpu, Landsbankahúsið og viðbyggingu við Alþingi.
Þetta er ekki hótun heldur staðreynd, en verði ekkert að gert þá munu lið Íslands í handbolta, og jafnvel í körfubolta líka, ekki getað leikið sína heimaleiki á Íslandi vegna reglna sérsambandanna sem allir aðrir en Ísland virðast geta uppfyllt, þar með taldir frændur okkar í Færeyjum,“ segir Guðni meðal annars um málið.