Jude Bellingham kom Englandi til bjargar í 16-liða úrslitum EM gegn Slóvakíu. Þá skoraði hann með hjólhestaspyrnu til að tryggja þeim ensku framlengingu, þar sem þeir unnu svo sigur.
Englendingurinn ungi, sem er á mála hjá Spánar- og Evrópumeisturum Real Madrid, hefur farið mikinn utan vallar og í viðtölum í kringum EM. Hann var til umræðu í hlaðvarpi Íþróttavikunnar á 433.is.
„Hann er ekkert eðlilega þreyttur karakter. Ég er ekki aðdáandi,“ sagði Helgi Fannar Sigurðsson þar.
„Ég hef gaman að honum,“ svaraði þá Hörður Snævar Jónsson.
„Fólk skiptist svolítið í fylkingar og við erum greinilega sitt hvoru megin þar,“ sagði Helgi þá.
Einhverjir vilja meina að Bellingham sé kominn fram úr sér eftir flott tímabil með Real Madrid, sem og þar áður með Dortmund.
„Hann er kannski fullmikið kominn fram úr sér eftir þetta tímabil með Real Madrid en ef þú ert 21 árs búinn að vinna allt galleríið með Real Madrid þá er örugglega mjög auðvelt að missa hausinn aðeins,“ sagði Hörður.