Nýr þáttur af sérstakri hlaðvarpsútgáfu af Íþróttavikunni er kominn út.
Þættirnir eru í tilefni af EM í Þýskalandi en einnig er farið í íslenska boltann, sem og boltann úti í heimi þar sem sjónvarpsþátturinn Íþróttavikan á 433.is er kominn í sumarfrí.
Í þessum þætti fara þeir Hörður Snævar Jónsson og Helgi Fannar Sigurðsson yfir komandi leiki í 8-liða úrslitum EM, Bestu deild karla, Mjólkurbikarinn og fleira.
Hlustaðu á hlaðvarpið hér að neðan eða í helstu hlaðvarpsveitum.