Hin 21 árs gamla Belle, sem hefur slegið í gegn undanfarið með djörfu efni sínu, hefur verið að sitja fyrir í landsliðstreyju Englands og segir hún mikla eftirspurn eftir því.
„Undanfarin ár hef ég mokað inn á afar djörfu efni en nú fæ ég borgað fyrir að vera í bolnum,“ segir Belle, sem er ánægð með þetta fyrirkomulag til tilbreytingar og segist jafnvel þéna enn meira á því.
„Þetta eru smá djarfar myndir, treyjan sýnir aðeins meira en venjulega en þeir biðja mig aldrei um að taka hana af.“
Belle segir eftirspurnina að miklu leyti vera þar sem tímarit sem eitt sinn komu út í kringum stórmót heyri sögunni til.
„Einn sagði mér að hann saknaði þess þegar stelpur sátu fyrir í fótboltatreyjum í kringum EM og HM. Þá fannst engum það athugavert. Þeir fá þetta hjá mér án þess að líða eins og þeir séu að horfa á klám. “