Michael Olise kantmaður Crystal Palace fer í læknisskoðun hjá FC Bayern á sunnudag, fátt kemur í veg fyrir skipti hans þangað.
Talað hefur verið um að Manchester City hafi síðustu daga reynt að klófesta Olise en það án árangurs.
Olise er öflugur kantmaður frá Frakklandi en hann er í hópi landsliðsins sem undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana.
Viðræður Palace og Bayern hafa staðið yfir síðustu vikur en klásúla um hluta af næsta kauverði var sett inn í dag til að klára málið.
Olise var áður í herbúðum Reading en hann mun nú spila undir stjórn Vincent Kompany hjá stórliði Bayern.
🚨🔴 EXCL: Bayern have booked initial part of medical tests for Michael Olise on Sunday.
Understand nothing was signed yet until today as Bayern were informed of Palace to have a percentage on future sale for Olise after triggering the clause.
This was the key point to clarify. pic.twitter.com/lwTMZi2Q4p
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 4, 2024