UEFA hefur sent Jude Bellingham, landsliðsmanni Englands, bréf og krafið hann um útskýringu á athæfi sínu er hann fagnaði marki sínu í sigri á Slóvakíu í 16-liða úrslitum EM um helgina.
Eftir ömurlega frammistöðu Englands bjargaði Bellingham liðinu með því að jafna með hjólhestaspyrnu í blálok venjulegs leiktíma. Enska liðið vann svo í framlengingu.
Handahreyfingar hans er hann fagnaði marki sínu vöktu athygli og var því velt upp hvort þær gætu komið honum í vandræði. Vill hann sjálfur meina að þær hafi beinst að vinum hans í stúkunni en ekki varamannabekk Slóvaka, eins og hefur verið haldið fram.
Meira
Sjáðu hvað Bellingham gerði í gær og náðist á myndband – Lendir hann í vandræðum?
Svo gæti farið en verði Bellingham fundinn sekur um óviðeigandi hegðun fær hann sekt eða bann. Hjá enska knattspyrnusambandinu eru menn bjartsýnir á að Bellingham fái ekki bann. Sekt þykir líklegri niðurstaða og svo gæti farið að niðurstaða fáist ekki einu sinni í málið fyrr en eftir EM.
Bellingham fær þrjá sólarhringa til að bregðast við bréfi UEFA og útskýra sitt mál.
England mætir Sviss í 8-liða úrslitum EM á laugardag og má sem stendur búast við að Bellingham spili þann leik.