Marc Guehi varnarmaður Crystal Palace er eftirsóttur biti og ensk blöð segja að Real Madrid vilji kaupa hann.
Guehi hefur byrjað alla leiki enska landsliðsins á Evrópumótinu í sumar en hann er 23 ára gamall.
Ensk blöð segja að Barcelona og Juventus hafi einnig áhuga á að kaupa hann.
Guehi hefur átt góð tímabil með Palace og hefur hann verið orðaður við mörg lið.
Varnarmaðurinn missir af leik enska landsliðsins í átta liða úrslitum gegn Sviss þar sem hann tekur út leikbann.