Nokkuð ljótt atvik kom upp í leik Portúgals og Slóveníu á Evrópumótinu í knattspyrnu á mánudag.
Þannig hafði öryggisgæslan afskipti af einum manni sem þeir enduðu á að berja nokkuð hressilega.
Fjöldi manna úr gæslunni tók þá manninn og byrjaði að berja hann, þegar hann var komin í jörðina fór einn að sparka í hann.
Ekki kemur fram hvað maðurinn gerði af sér en ljóst er að gæslan hefði ekki þurft að beita þessu harkalega ofbeldi til að halda manninum rólegum.
Atvikið má sjá hér að neðan.
🚨 A fan was punched and kicked by security during the Portugal vs Slovenia match. (@Record_Portugal) pic.twitter.com/dIPYLNE4O6
— EuroFoot (@eurofootcom) July 2, 2024