Nathaniel Mendez-Laing 32 ára gamall kantmaður Derby County var handtekinn í Magaluf á sunnudag og er hann sakður um að hafa ráðist á konu.
Konan sakar Mendez-Laing um að hafa ráðist á sig og stolið símanum sínum.
Mendez-Laing var handtekinn vegna málsins og settur í fangaklefa, kona hans er sökuð um að hafa tekið þátt í þessu og rifið í hár konunnar.
Hún var einnig handtekinn vegna málsins en parinu var hleypt út eftir að hafa borgað 300 evrur í tryggingu.
Konan er sögð hafa elt parið á skemmtistað og tekið myndir og myndbönd af þeim áður en allt sauð upp úr.