Joshua Kimmich leikmaður FC Bayern vill ólmur fara til Manchester City í sumar en frá þessu segja ensk blöð í dag.
Guardiola var maðurinn sem keypti Kimmich til Bayern frá RB Leipzig árið 2015.
Kimmich er til sölu í sumar og samkvæmt fréttum vill hann ólmur komast aftur til Guardiola.
City er að skoða markaðinn en fáir leikmenn hafa verið orðaðir við félagið en nú kemur Kimmich til greina.
Kimmich er kröftugur miðjumaður sem gæti nýst liði City á næstu leiktíð.