Jude Bellingham gæti verið í vanda fyrir athæfi sitt eftir að hann skoraði gegn Slóvakíu í 16-liða úrslitum EM í gær.
Eftir ömurlega frammistöðu Englands bjargaði Bellingham liðinu með því að jafna með hjólhestaspyrnu í blálok venjulegs leiktíma. Enska liðið vann svo í framlengingu.
„Hver annar?“ sagði Bellingham eftir að hafa skorað markið en það eru handahreyfingar hans í kjölfarið sem vekja athygli og því velt upp hvort þær komi honum í vandræði.
Jude Bellinghams gesture to the Slovakian bench after he scored 👊🇸🇰🏴 pic.twitter.com/qwlUSa7Ocs
— Football Fights (@footbalIfights) June 30, 2024
Sjálfur segir Bellingham að um einkahúmor hafi verið að ræða sem beindist að vinum hans í stúkunni, ekki varamannabekk Slóvakíu eins og hafði verið gefið í skyn.
„Ég ber ekkert nema virðingu fyrir spilamennsku Slóvaka í kvöld,“ skrifaði Bellingham á X.
Það er ljóst að UEFA mun skoða málið. England mætir Sviss í 8-liða úrslitum á laugardag.