Vigfús Arnar Jósepsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari KR en hann mun þar aðstoða Pálma Rafn Pálmason.
Þetta hefur KR staðfest en félagið staðfesti það einnig í gær að Pálmi myndi þjálfa liðið út tímabilið.
Pálmi tekur við af Gregg Ryder sem var látinn fara fyrr í mánuðinum eftir slaka byrjun.
Vigfús var síðast þjálfari Leiknis R. í Lengjudeildinni en ákvað að hætta störfum þar fyrr á tímabilinu.
Vigfús Arnar Jósepsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Pálma Rafns út keppnistímabilið. Vigfús er KR-ingum kunnur en hann spilaði með KR á sínum tíma.
Við bjóðum Vigfús velkominn til baka í KR 🖤🤍 pic.twitter.com/r0PKVbDn03— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) June 30, 2024