Alex Oxlade-Chamberlain er ekki að heilla marga hjá Besiktas í Tyrklandi ef marka má fjölmiðla þar í landi.
Þessi fyrrum enski landsliðsmaður lék 30 leiki í vetur og skoraði fjögur mörk á sínu fyrsta tímabili í Tyrklandi.
Samkvæmt nýjustu fregnum er Besiktas hins vegar að leitast eftir því að losa leikmanninn sem hefur leikið með bæði Liverpool og arsenal.
Aðrar stjörnur eins og Arthur Masuaku, Daniel Amartey, Ante Rebic og Vincent Aboubakar eru einnig á sölulista Besiktas.
Giovanni van Bronckhorst, fyrrum leikmaður Arsenal og hollenska landsliðsins, var ráðinn þjálfari Besiktas fyrir tveimur dögum.
Hann vill taka til í leikmannahópnum og eru líkur á að hann fái ágætis upphæð fyrir Oxlade-Chamberlain sem er aðeins 30 ára gamall.