Phil Foden leikmaður enska landsliðsins yfirgaf herbúðir liðsins í gær til að fara heim til Englands og vera viðstaddur þegar þriðja barn hans kemur í heiminn.
Foden og Rebecca Cooke hafa verið saman um langt skeið og hafa gengið í gengum ýmislegt.
Foden og Rebecca eru 24 ára gömul en þau eignuðust sitt fyrsta barn fyrir fimm árum síðan.
Elsti sonur þeirra Roonie er orðinn að stórstjörnu en hann er með 3 milljónir fylgjenda á Instagram. Foden og Rebecca kynntust í grunnskóla og hafa verið saman allar götur síðan.
Samband Foden og Rebecca stóð höllum fæti árið 2020 þegar Foden var gómaður við það að halda framhjá Rebecca með íslenskum stelpum.
Málið rataði í heimsfréttirnar og var Foden ásamt Mason Greenwood hent út úr enska landsliðinu vegna þess. Íslenska stelpan sem var með Foden þessa nótt á Hótel Sögu ræddi málið opinskátt.
,,Margir sem hafa sent mér að hann (Foden) á kærustu og barn, ég vissi það ekki. Ég googlaði ekki manneskjuna ekki áður en ég fór að hitta hann, ég finn til með öllum í kringum hann. Fjölskyldunni, kærustunni, liðsfélögum og honum líka. Það er heiður að spila með landsliðinu. Ég gerði mér grein fyrir því að þeir væru eitthvað þekktir en þetta voru mikil mistök hjá öllum aðilum að hafa ekki hugsað lengra en það sem gerðist,“ sagði konan eftir atvikið.