Bayern Munchen er farið að skoða aðra kosti á miðsvæði sitt vegna þess hversu erfitt er að semja við Fulham um Joao Palhinha.
Palhinha hefur verið orðaður við Bayern frá því í fyrra og vill sjálfur fara þangað en þýska félagið er ekki til í að borga eins mikið og Fulham vill. Talið er að Bayern vilji fá hann á 40 milljónir punda en Fulham vill töluvert hærri upphæð.
Bayern horfir nú til Everton, nánar til tekið miðjumannsins Amadou Onana. Staðarmiðillinn Liverpool Echo segir frá þessu.
Onana heillaði með Everton á síðustu leiktíð og sér Bayern hann sem mjög álitlegan kost ef ekki tekst að koma Palhinha yfir línuna.
Vincent Kompany mun stýra Bayern á næstu leiktíð eftir að hafa yfirgefið Burnley til að taka við félaginu fyrir skömmu.