René Hake er að hætta sem þjálfari Go Ahead Eagles og mun fara inn í þjálfarateymi Erik ten Hag hjá Manchester United.
Willum Þór Willumsson hefur spilað undir stjórn Hake hjá félaginu undanfarin ár.
Ten Hag er að gera nýjan samning við United og verða breytingar á teyminu í kringum hans.
Hake er að koma inn en einnig Ruud van Nistelrooy sem er að koma til félagsins. Verða þeir aðstoðarmenn Ten Hag.
Búist er við að tilkynnt verði um þetta á allra næstu dögum.
🚨 | BREAKING:#mufc plan to add Go Ahead Eagles manager René Hake to Erik ten Hag’s coaching staff for next season.
Hake and Ruud van Nistelrooy are both expected to be new additions.
[@FabrizioRomano] pic.twitter.com/z9Z5Vx8Yhr
— UtdDistrict (@UtdDistrict) June 27, 2024