Thomas Tuchel mun hætta sem knattspyrnustjóri Bayern Munchen eftir yfirstandandi tímabil. Sky í Þýskalandi greinir frá þessu og þurfa þessi tíðindi ekki endilega að koma á óvart.
Bayern hefur gengið illa undir stjórn Tuchel – að minnsta kosti í sögulegu samhengi – en liðið situr í 2. sæti þýsku deildarinnar átta stigum á eftir Bayer Leverkusen.
Bayern hefur tapað tveimur deildarleikjum í röð og tapaði að auki fyrri leik sínum gegn Lazio í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í síðustu viku. Þá er liðið úr leik í þýska bikarnum.
Sky segir að um sé að ræða „sameiginlega ákvörðun“ og er reiknað með að Bayern muni tilkynna þetta formlega fljótlega.
Talið er að forráðamenn Bayern hafi áhuga á að fá Xabi Alonso, fyrrverandi leikmann félagsins, til að taka við af Tuchel en Alonso hefur gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen á þessari leiktíð.