Enska úrvalsdeildarliðið Newcastle United hefur sett 34 ára gamla konu, að nafni Linzi Smith, í áhorfendabann til ársins 2026, fyrir ummæli hennar á samfélagsmiðlinum X, sem áður hét Twitter, um transmálefni. Konan sagði meðal annars að trans fólk væri haldið geðsjúkdómi.
Málið hefur vakið töluverða athygli í breskum fjölmiðlum, ekki síst vegna þess að á vegum ensku úrvalsveildarinnar var farið í ítarlega, leynilega fjögurra mánaða langa rannsókn á högum Linzi og framgöngu hennar á samfélagsmiðlum. Gagnapakkinn sem safnað var leynilega var síðan sendur til lögreglunnar og voru þar meðal annars upplýsingar um heimilisfang Linzi. Eftir tveggja klukkustunda skoðun komst lögreglan hins vegar að því að Linzi hefði ekki gerst brotleg við lög. Newcastle ákvað engu að síður að setja Linzi í áhorfendabann til ársins 2026. Linzi hyggst leita lagalegs réttar síns og freista þess að fá bannið fellt úr gildi.
Fréttin greindi fyrst frá málinu hérlendis en meðal enskra fjölmiðla sem fjallað hafa um málið eru Daily Mail og The Telegraph.
Linzi líkir vinnubrögðum úrvalsdeildarinnar í málinu við vinnubrögð austurþýsku leyniþjónustunnar Stasi sem stundaði víðtækar njósnir á einkalífi borgara fyrrverandi þýska alþýðulýðveldisins á síðari hluta 20. aldar. Linzi segir: „Ég á erfitt með að trúa því að þetta hafi komið fyrir mig. Það vekur furðu að þeir hafi gengið svona langt vegna þess eins að ég tjáði skoðanir mínar, sem ég hef rétt á að tjá, á mínum eigin Twitter-reikningi.“
Samkvæmt frétt Daily Mail liggur fyrir að Linzi hafi ekki með nokkrum hætti sýnt af sér ámælisverða hegðun á leikjum liðsins heldur eru rannsóknin og bannið tilkomin vegna ummæla hennar á X. Linzi hefur verið tjáð að framganga hennar þar feli í sér áreitni og gangi gegn jafnréttisstefnu Newcastle United.
Sjá nánar hér.