Jose Mourinho, þjálfari ítalska liðsins Roma, er orðinn pirraður á stjörnuleikmanni sínum og samlanda Renato Sanches. Aðeins tíu vikur eru síðan Sanches skrifaði undir lánsamning hjá Roma en meiðsli hafa plagað hann síðan, alveg eins og hjá öðrum liðum sem hann hefur spilað fyrir.
Sanches, sem er 26 ára gamall, byrjaði leik Roma gegn FC Sheriff Tiraspol í gær en þurfti að haltra af velli á 28. mínútu leiksins. Roma vann að lokum leikinn 2-1 með sigurmarki frá Romelu Lukaku. Það sem af er leiktíðinni hefur Sanches aðeins náð að spila um 98 mínútur fyrir Roma en í opnunarleik tímabilsins gegn Salernitana þurfti hann að fara af velli vegna vöðvaverkja eftir 25 mínútna leik.
Hann missti síðan af leikjum gegn AC Milan og Verona vegna meiðsla en sneri aftur í byrjunarlið Roma í leik gegn Empoli á dögunum. Þar náði hann spila fyrri hálfleik leiksins en þurfti að víkja af velli vegna óþæginda í hálfleik.
Ljóst er að Mourinho er orðinn verulega pirraður á Sanches. Á blaðamannafundi eftir sigurleikinn í gær sagðist hann ekkert botna í stöðunni á samlanda sínum.
„Þeir [Sanches og Houssem Aouar sem einnig glímir við meiðsli] þurfa að spila. Þeir þurfa ryþma og ákefð. Renato er alltaf tæpur, það er erfitt að skilja þetta. Bayern skildi hann ekki, PSG skildi hann ekki og við erum að glíma við vandamálið,“ sagði Mourinho.
Roma situr í 12. sæti Seria A með aðeins 4 stig eftir fjóra leiki og ljóst er að Mourinho og aðdáendur liðsins eru allt annað en áægður með þá byrjun.