Umspil um sæti í Bestu deild karla að ári hefst í dag með tveimur leikjum. Hægt er að horfa á þá hér neðar.
Tillaga um breytt fyrirkomulag í Lengjudeildinni var samþykkt á ársþingi KSÍ 2022 og kemur nú til framkvæmdar. Liðin sem lentu í sætum 2-5 fara í umspil og mætast annarsvegar sæti 2 og 5 og hinsvegar sæti 3 og 4 í tveimur leikjum heima og að heiman.
Fyrri leikirnir fara fram í dag klukkan 16:30 þar sem Leiknir og Afturelding mætast í Breiðholti og á Ísafirði mætast Vestri og Fjölnir.
Á sunnudaginn næstkomandi mætast svo þessi lið aftur og þá kemur í ljós hvaða lið mætast í hreinum úrslitaleik á Laugardalsvelli um laust sæti í Bestu deildinni.
Leiknir – Afturelding:
Vestri – Fjölnir: