Fyrrum landsliðsmaðurinn og nú landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson var gestur í nýjasta þætti Íþróttavikunnar. Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson hafa umsjón með þættinum.
Vallarmál voru til umræðu í þættinum en aðstaðan á Laugardalsvelli og Laugardalshöll er ekki boðleg. Spilað hefur verið á undanþágum undanfarin ár.
„Ég hef grínast með það að það besta sem gæti gerst væri að þessi undanþága væri ekki veitt lengur og að íslenska landsliðið í handbolta þyrfti bara að spila í Danmörku einhvern mikilvægan leik um að komast á HM eða EM,“ sagði Snorri í þættinum.
„Allt finnst mér þetta beinast að stjórnvöldum en ég er ekkert viss um að þú yrðir einhverju nær ef eitthvert þeirra sæti hérna,“ bætti hann við.
Umræðan í heild er í spilaranum.