Jessica Goicoechea er að verða ansi stór persóna á samfélagsmiðlum en breska götublaðið The Sun tók saman miklar breytingar á henni í gegnum árin.
Goicoechea er vel þekkt á meðal knattspyrnuaðdáenda en hún er kærasta varnarmannsins Marc Bartra sem gerði garðinn frægan með Barcelona.
Bartra hefur á ferli sínum spilað fyrir Borussia Dortmund, Real Betis og Trabzonspor, auk Börsunga.
Goicoechea byrjaði að mynda sig árið 2014, þá 18 ára gömul og birta á samfélagsmiðlum og stækka nafn sitt smátt og smátt.
Árið 2016 var hún atvinnufyrirsæta sem sat reglulega fyrir.
Undanfarið hefur hún vakið mikla athygli fyrir djarfar myndir sínar og nú nálgast fylgjendahópur hennar á Instagram tvær milljónir manna.
Hér að neðan má sjá myndir af Goicoechea í gegnum árin.
2016
2017
2018
2019
2020
2021
2023