fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
433Sport

Stundaði framhjáhald með stjörnu og var beðin um nektarmyndir daglega: Segist hafa verið notuð – ,,Hvernig maður er þetta?“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 10. desember 2023 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

OnlyFans-stjarnan Paola Saulino segir frá því að leikmaður Chelsea hafi átt í framhjáhaldi með henni.

Saulino og fótboltamaðurinn hittust fyrst í partíi, áður en þau stunduðu kynlíf í bíl. Samband þeirra stóð yfir í einhvern tíma en á endanum fannst Saulino hún notuð.

Hún segir að stjarnan hafi beðið um nektarmyndir daglega.

Saulino vonast til þess að með því að segja sína sögu geti hún varað aðrar konur við óheiðarlegum knattspyrnumönnum.

„Hann kynnti sig strax fyrir mér og gat í raun ekki tekið augun af mér. Við hlógum saman og áttum frábæra tíma saman. Mér líkaði mjög vel við hann,“ segir Saulino um fyrstu kynni þeirra. Þau hafi svo sofið saman í bíl og farið á djammið. Eftir það ákváðu þau að hittast síðar.

Eftir þetta var fótboltamaðurinn í miklu samandi við Saulino. „Hann bað mig um nektarmyndir á hverjum degi. Hann bað oft um eina mynd í viðbót. Stundum sendi ég honum myndir seint á kvöldin svo hann gæti séð þær þegar hann vaknaði.“

Þau hittust oft í Lundúnum, fóru út að borða og slíkt. Saulino á nóg til og segist hafa eytt meira en hann á stefnumótum þeirra. Svo lauk sambandinu hins vegar skyndilega. Leikmaðurinn endaði það með símtali.

„Mér fannst ég niðurlægð. Hann lét mig elska sig en kom svo illa fram við mig. Ég sá hann fyrir hvað hann var, slæman gaur sem lýgur og virðir ekki annað fólk. Hann notaði mig og hélt framhjá kærustu sinni. Hvernig maður er þetta?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sjáðu atvikið umdeilda á Emirates: Piers Morgan brjálaður – Var þetta verðskuldað rautt spjald?

Sjáðu atvikið umdeilda á Emirates: Piers Morgan brjálaður – Var þetta verðskuldað rautt spjald?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

England: Tíu menn Arsenal náðu stigi gegn Brighton

England: Tíu menn Arsenal náðu stigi gegn Brighton
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Toney farinn frá Brentford

Toney farinn frá Brentford
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Hólmbert Aron samdi við Preußen Münster til tveggja ára

Hólmbert Aron samdi við Preußen Münster til tveggja ára
433Sport
Í gær

Sociedad kynnir Orra Stein til leiks

Sociedad kynnir Orra Stein til leiks
433Sport
Í gær

Glugganum skellt í lás í kvöld – Sancho færist nær Chelsea og hvað gerir Sterling?

Glugganum skellt í lás í kvöld – Sancho færist nær Chelsea og hvað gerir Sterling?