Það má búast við fjörugum leik er Tottenham tekur á móti Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Um er að ræða lokaleik helgarinnar en bæði lið hafas verið smá brasi undanfarið og þá sérstaklega heimamenn.
Tottenham hefur ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum og tapaði heima gegn West Ham í síðustu umferð.
Newcastle getur komist tveimur stigum fyrir ofan Tottenham með sigri en aðeins eitt stig skilur liðin að í deildinni.
Hér má sjá byrjunarliðin í London.
Tottenham: Vicario, Porro, Romero, Davies, Udogie, Sarr, Bissouma, Johnson, Kulusevski, Richarlison, Son
Newcastle: Dubravka, Trippier, Schar, Lascelles, Livramento, Miley, Guimaraes, Joelinton, Almiron, Gordon, Isak