Þetta staðfestir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við Morgunblaðið. Löglega má kvennalandsliðið spila á nokkrum gervigrasvöllum hér á landi í febrúar en þá þyrfti að spila snemma dags vegna reglna um flóðljós.
„Eins og við vitum nær dagsbirta á Íslandi ekki langt í febrúar og leikurinn gæti væntanlega ekki hafist síðar en klukkan 14.00 sem er ekki sérstaklega góður leiktími á virkum degi. Íslenskir vellir eru opnir fyrir veðri og vindum, og þó þeir séu með undirhita þá eru ekki eiginlegar snjóbræðslur undir þeim og kerfin hafa ekki undan ef um mikla snjókomu er að ræða,“ segir Klara við Morgunblaðið.
„En það verða alltaf geysileg vonbrigði að geta ekki spilað þennan leik á heimavelli við boðlegar aðstæður, með öllum þeim stuðningi sem heimaleik fylgir.“
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari fór mikinn í viðtölum eftir sigur Íslands gegn Wales á dögunum þegar hann var spurður hvar leikirnir í febrúar ættu að fara fram. Gagnrýndi hann Ásmund Einar Daðason harðlega eins og frægt er orðið.
„Ég veit það ekki. Það væri gaman að spyrja íþróttamálaráðherra að því en nei, hann hefur aldrei séð fótboltalandsleik,“ sagði Þorsteinn við RÚV.
„Það væri áhugavert að hitta hann og spyrja hann um þessa hluti. Hann reyndar talar alltaf bara um þjóðarhöll og hefur aldrei minnst á þjóðarleikvang í neinni ræðu, hvar sem hann kemur. Hann hefur aldrei mætt á landsleik, þannig að ég veit ekki alveg hvernig við eigum að ná í hann.“
Ásmundur fagnaði gagnrýninni svo í samtali við Stöð 2.
„Svona hvatningu tökum við áfram en við erum hins vegar með þetta í þeim farvegi núna og erum að keyra það mjög fast pólitískt áfram að við ætlum að koma þjóðarhöll af stað. Þar erum við á síðustu metrunum að klára það milli ríkis og borgar. Í framhaldinu ætlum við að setja aðra þjóðarleikvanga, það er að segja knattspyrnuvöll og frjálsíþróttavöll, í sambærilega fasta pólitíska farveginn.“