Joey Barton er að gefa út hlaðvarp í dag en hann fær á baukinn fyrir það hvernig hann ræðir morð sem bróðir hans og frændi frömdu árið 2005.
Michael Barton var 17 ára þegar hann og Paul Taylor myrtu Anthony Walker árið 2005. Morðið var hrottalegt og fjölskylda Walker er ósátt með málið.
Walker var dökkur að hörund og segir fjölskylda hans að morðið hafi tengst húðlit hans. „Vinur hans og frændi taldi það frábæra hugmynd að taka upp exi þegar þeir voru í slagsmálum. Hann sveiflaði henni og beint í hausinn á einstaklingi,“ segir Barton.
Barton segir að bróðir sinn hafi tapað sautján árum af lífi sínu vegna hegðunar frænda síns.
Gee Walker móðir Anthony Walker segir þetta rangt mál. „Það er enginn skynsemi í þessum orðum miðað við alvarleika þess mál, þarna var Anthony Walker myrtur í árás sem var lituð af rasisma,“ segir Gee.
Hún segir Michael Barton ekki hafa tapað einun einasta degi af lífinu en þarna hafi sonur hennar lifað sinn síðasta daga.
Eftir að hafa myrt Walker þá flúðu Michael Barton og Paul Taylor til Amsterdam. Það var Joey Barton sem skipaði þeim að snúa aftur og svara til saka.
Football – Violence – prison
The Joey Barton story goes live this Friday 5pm 🎤 pic.twitter.com/w9iRo0EuBz
— James English (@jamesenglish0) November 29, 2023