Breiðablik varð undir lok sumars fyrsta íslenska karlaliðið til að tryggja sér sæti í riðlakeppni í Evrópu. Hefur liðið spilað fjóra leiki þar, tvo heima og tvo úti. Allir hafa tapast. Aðstæður í síðasta heimaleik liðsins á Laugardalsvelli gegn Gent þann 9. nóvember voru ekki upp á marga fiska.
„Þau í Laugardalnum eru búin að gera allt fyrir okkur, haft völlinn eins góðan og hægt er og öll umgjörð hefur verið fín,“ sagði Halldór í sjónvarpsþættinum 433.is.
Hann bendir á að þó svo 1700 manns hafi verið á leiknum í Laugardal hafi stúkan virkað tóm og að stemningin hefði verið betri á Kópavogsvelli.
„Það er auðvitað svolítið sérstakt að þegar UEFA setur þessa Sambandsdeild á laggirnar, það er auðvitað vitað að það komist minni þjóðir og minni lið í þessa keppni, að það gildi sömu reglur sama hvort þú komir frá 80 milljóna manna þjóð eða 400 þúsund. Það eru sömu reglur, þurfa að vera jafnmörg sæti og svo framvegis. Það er undarlegt.
Ef þessi keppni á að vera einhver gulrót fyrir minni þjóðir og minni lið þá, með fullri virðingu, er fullur Kópavogsvöllur miklu sjónvarpsvænni en frosinn Laugardalsvöllur og það er eins og enginn sé á vellinum. En svona eru reglurnar og við vissum það.“
Halldór segir það miður að ekki séu betri aðstæður til fótbotlaiðkunar á hæsta stigi yfir veturinn á Íslandi.
„Þetta er kannski eitthvað sem Ísland hefði þurft að pæla í fyrr. Klaksvík fer í þessa keppni og var með allt klárt, vissu nákvæmlega hvað þeir voru að fara út í. Mögulega hefði Ísland átt að vera klárt með einhvers konar völl sem tekur þá 4 þúsund manns í sæti og er með aðeins sterkari flóðljós og er hybrid eða gervigras. Þannig gætu landsleikir yfir vetrartímann farið fram hérna á veturna og þessi lið sem eru að fara í riðlakeppni hefðu þá einhvern stað til að leita á.“
Halldór kom aftur inn á aðstæðurnar í síðasta leik.
„Kantarnir í Gent leiknum voru gaddfreðnir. Það var ómögulegt að taka hornspyrnur, línuverðirnir stóðu varla í lappirnar. Þetta voru mjög frumstæðar aðstæður þó svo að allt hafi verið gert fyrir völlinn, það er bara mjög erfitt á Íslandi í nóvember,“ sagði hann.
Breiðablik spilar sinn síðasta heimaleik í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar í bili á fimmtudag. Er hann gegn Maccabi Tel Aviv.
Ítarlegt viðtal við Halldór má nálgast í spilaranum.