Meintur hryðjuverkamaður í Brussel birtist á myndbandi á samfélagsmiðlum í gærkvöldi og sagðist hafa myrt þrjá sænska ríkisborgara þar í gær. Tveir voru skotnir til bana í borginni í gærkvöldi og greindu fjölmiðlar í Belgíu frá því nú í morgunsárið að meintur árásarmaður hafi verið skotinn til bana í Schaerbeek-hverfinu undir morgun. Yfirvöld eiga þó eftir að staðfesta að um sama mann sé að ræða.
„Við lifum fyrir trú okkar, við deyjum fyrir trú okkar. Ég er að hefna mín fyrir múslima og nú hef ég drepið þrjá Svía. Ég þakka Guði, ég mun hitta hann og spámanninn glaður í bragði,“ sagði maðurinn á myndbandinu en eins og fyrr segir er talið að tveir hafi látist í árásinni.
Maðurinn er samkvæmt erlendum miðlum með tengsl við ISIS-samtökin. Báðir þeir sem létu lífið voru klæddir í sænska landsliðsbúninginn og voru á leið á völlinn þar sem leikur Belga og Svía fór fram.
Í myndbandi sem sjá má neðst í fréttinni sést hann skjóta ítrekað á annan aðilann sem liggur í jörðinni.
Tveir sænskir ríkisborgarar voru myrtir í Brussel, höfuðborg Belgíu, í gær. Voru þeir mættir þangað til að fylgja eftir landsliði sínu.
Yfirvöld í Belgíu rannsaka málið sem hryðjuverk og vegna þess var leik hætt þegar Belgía og Svíþjóð áttust við, en leikmenn Svíþjóðar sögðu við UEFA að þeir kærðu sig ekki um að spila seinni hálfleikinn og belgísku leikmennirnir tóku undir.
@kristalski #fyp #viral #bruxelles #shooter #war #news #new #terror #isi ♬ original sound – AGE.Man