Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, er hættur með kærustu sinni til margra ára, Lucia Loi miðað við nýjustu myndir.
Frá þessu greina enskir miðlar en myndir af Rashford með ónefndri konu á Miami birtust um helgina.
Þetta eru fréttir sem koma mörgum á óvart en Rashford og Lucia voru saman í mörg ár og hefur hún stutt við bakið á honum sem atvinnumaður.
Rashford sást fyrir utan hótel með konunni klukkan fimm um nótt á föstudag og fóru þau síðar saman inn á herbergi.
Rashford átti frábært tímabil með Man Utd en hann skoraði 30 mörk í öllum keppnum fyrir félagið.
Útlit er nú fyrir að stjarnan sé orðin einhleyp eins og myndirnar hér gefa til kynna.