Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár en vonir standa til um að það sé að ná vopnum sínum. Mál utan vallar voru í brennidepli um skeið, eins og flestum er kunnugt. Landsliðsþjálfari gat til að mynda ekki valið lykilleikmenn í liðið sem hafði áhrif á frammistöðuna.
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fór í viðtal til Kristjáns Óla Sigurðssonar í Þungavigtinni og var hann spurður út í framgöngu KSÍ á þessum erfiða tíma.
„Hvernig fannst þér Guðni (Bergsson fyrrum formaður KSÍ) og síðar Vanda (Sigurgeirsdóttir formaður) sem arftaki hans taka á þessum málum?“ spurði Kristján.
„Ég held að þetta hafi bara verið sjokk fyrir alla og menn voru ekkert undirbúnir undir eitthvað svona,“ svaraði Aron, sem sneri einmitt aftur í landsliðið í fyrra.
„Það er alltaf erfitt að vita hvert maður á að fara og stíga. Ég hef alveg fulla trú á að allir hafi verið að reyna sitt besta.“
Arnar Þór Viðarsson, sem var látinn fara úr stöðu landsliðsþjálfara, var oft látin svara fyrir mál utan vallar þegar þau komu upp.
„Það var erfitt fyrir hann að standa þarna. Það er ekki bara pressa að ná í úrslit heldur er líka pressa að útskýra hluti sem fólk vill fá að heyra. Ég ber mikla virðingu fyrir honum með þetta því ég veit að þetta var ekki auðveldur tími fyrir hann sem þjálfara eða einstakling, að standa í þessum stormi og svara spurningum sem hann var ekkert að búast við,“ segir Aron.