Mauricio Pochettino mun taka við Chelsea í sumar en þetta fullyrðir blaðamaðurinn Fabrizio Romano.
Pochettino hefur verið sterklega orðaður við Chelsea undanfarnar vikur og er hann nú á leið aftur til London.
Argentínumaðurinn þekkir það vel að vinna í London en hann var áður hjá Tottenham og gerði góða hluti.
Síðast var Poch hjá Paris Saint-Germain en var látinn fara eftir síðasta tímabil.
Frank Lampard mun stýra Chelsea út tímabilið en Pochettino tekur við af honum í júní.