Paul Caddis, fyrrum liðsfélagi Raven Morrison, hefur tjáð sig um hvernig var að vera liðsfélagi miðjumannsins umdeilda.
Morrison er þrítugur í dag en hann var á sínum tíma einn efnilegasti leikmaður Englands og lék með Manchester United.
Ferill Morrison hefur þó farið vel niður á við undanfarin ár og hefur hann reynt fyrir sér í löndum eins og Svíþjóð.
Caddis segir að Morrison hafi áttað sig á eigin hæfileikum og vildi lifa glamúrlífi og hikaði ekki við að eyða peningum.
Á einum tímapunkti átti Morrison þrjá bíla þó að hann hafi ekki verið með réttindi til að keyra.
,,Hann var alltaf með fylgdarfólk með sér, við erum að tala um mikið af fólki. Þetta var svo undarlegt allt saman,“ sagði Caddis í samtali við Undr the Cosh.
,,Þetta fólk fylgdi honum hvert sem hann fór. Hann gat ekki keyrt en átti samt þrjá helvítis bíla. Þetta var svo mikið af fólki.“
,,Þvílíkir hæfileikar sem hann var með. Ég hafði aldrei séð annað eins á æfingasvæðinu. Ég skil af hverju hann var talinn svona efnilegur.“
,,Hann gat séð hluti sem aðrir sáu ekki. Hann gat gefið sendingar, hann gat dribblað boltanum og hann gat náð í boltann. Það var ótrúlegt að fylgjast með honum.“