Íþróttavikan er nú einnig aðgengileg í hlaðvarpsformi.
Um er að ræða vikulegan þátt þar sem Helgi Fannar Sigurðsson íþróttablaðamaður og Hrafnkell Freyr Ágústsson sérfræðingur fara yfir allt það helsta sem ber á góma í heimi íþrótta.
Í hverri viku fá þeir til sín góða gesti til að fara yfir sviðið með sér.
Þættirnir eru aðgengilegir hér á 433.is og einnig í Sjónvarpi Símans undir hnappnum „Hringbraut.“
Þá eru þeir nú einnig aðgengilegir í hlaðvarpsformi. Þá er að finna undir „433.is“ á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Þar má einnig hlusta á hlaðvarp 433.is um Lengjudeildina og fleira.
Hér að neðan má hlusta á nýjasta þáttinn, þar sem Vilhjálmur Freyr og Andri Geir úr hlaðvarpinu vinsæla Steve Dagskrá kíktu í heimsókn.
Hér má svo horfa á þáttinn.