Arsenal er óvænt að horfa til bakvarðarins Joao Cancelo þar sem framtíð hans í sumar er í mikilli óvissu.
Cancelo er samningsbundinn Manchester City en hann var lánaður til Bayern Munchen í janúarglugganum.
Cancelo hefur misst sæti sitt hjá Bayern og ætlar félagið ekki að kaupa hann endanlega á 70 milljónir evra.
Útlit er fyrir að Cancelo eigi heldur ekki framtíð fyrir sér í Manchester og er því fáanlegur í sumar.
Arsenal ætlar að berjast við Barcelona um að fá leikmanninn í sínar raðir en Man City mun horfa í það að selja frekar en að lána.