Raphael Varane varnarmaður Manchester United snýr aftur í liðið gegn Wolves á morgun. Erik ten Hag sagði frá á fréttamannafundi í dag.
United hefur saknað Varane síðustu vikur en Lisandro Martinez er meiddur og spilar ekki meira á tímabilinu.
Vondu fréttirnar fyrir United eru hins vegar þær að Marcus Rasfhord er ansi tæpur fyrir morgundaginn.
„Hann er í vandræðum, hann er meiddur á fæti og er stórt spurningarmerki á morgun,“ segir Ten Hag.
„Rashford er mjög tæpur en við erum ánægðir með að fá Varane aftur.“