Íþróttavikan er komin á fulla ferð á 433.is og í Sjónvarpi Símans. Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson sjá um þáttinn og fá þeir til sín góða gesti alla föstudaga. Í þetta skiptið voru þeir Andri Geir Gunnarsson og Vilhjálmur Freyr Hallsson úr hlaðvarpinu Steve Dagskrá gestir.
Besta deild kvenna fer skemmtilega af stað og lítur út fyrir jafna toppbaráttu þar. Deildin var tekin fyrir í þættinum.
„Ég held að Valur, Stjarnan og Breiðablik muni misstíga sig oft í sumar,“ segir Hrafnkell, en talað var um þessi þrjú lið sem þau sigurstranglegustu fyrir mót.
Hrafnkell sér þá fyrir sér ævintýri í Laugardal.
„Ég sé alveg Þrótt, með Kötlu og Ólöfu Sigríði, blanda sér í þetta líka.“
Þátturinn er hér að neðan.