2. umferð Lengjudeildarinnar er farin af stað en 433.is er heimili Lengjudeildarinnar í sumar. Verður einn leikur í beinni umferð í hverri viku og markaþáttur eftir hverja umferð.
Í 2. umferð munum við sýna leik Aftureldingar og Þórs sem fram fer í kvöld og hefst klukkan 19:30.
Afturelding vann góðan sigur á Selfossi í fyrstu umferð en Þór vann sigur á Vestra á heimavelli.
Útsending hefst skömmu fyrir leik á 433.is og mun Helgi Fannar Sigurðsson lýsa því sem fram fer á vellinum.