Nýjasti þáttur Íþróttavikunnar er kominn í loftið. Hann má nálgast hér neðar en einnig í Sjónvarpi Símans.
Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson sjá um þáttinn og fá þeir til sín góða gesti alla föstudaga. Í þetta skiptið voru þeir Andri Geir Gunnarsson og Vilhjálmur Freyr Hallsson úr hlaðvarpinu Steve Dagskrá gestir.
Úr varð mikið fjör. Farið var yfir boltann hér heima, enska boltann, Meistaradeild Evrópu og margt fleira.
Þá var glænýr dagskráliður kynntur til leiks.