Samkvæmt fjölmiðlum í Argentínu er líklegast að markvörðurinn Emi Martinez gangi í raðir Tottenham í sumar.
Martinez er klár í að fara frá Aston Villa en hann varð Heimsmeistari með Argentínu í desember.
Martinez fór frá Arsenal sumarið 2020 og gekk í raðir Aston Villa þar sem hann hefur verið frábær.
Hugo Lloris fyrirliði og markvörður Tottenham er samningslaus í sumar og stefnir í að hann fari.
Í Argentínu segir að Manchester United og Chelsea hafi einnig verið að skoðað Emi en Tottenham sýni mestan áhuga eins og sakir standa.