Talið er að Glazer fjölskyldan muni selja helmingshlut í félaginu til Sir Jim Ratcliffe en það hefur þó ekki fengið staðfest. Sheik Jassim frá Katar vill kaupa allt félagið.
INEOS fyrirtæki Ratcliffe verður hins vegar í vandræðum með að ganga frá kaupunum í tíma ef Glazer tekur tilboði þeirra.
Í tíma er átt við félagaskiptagluggann sem opnar júní og þá fara félögin að kaupa leikmenn villt og galið.
Ef Ratcliffe eða hver sem er hefur ekki gengið frá kaupunum á þeim tíma þá geta þeir ekki sett fjármuni inn í félagið.
Talið er að Glazer fjölskyldan vilji frekar selja helming til Ratcliffe frekar en að selja allt. Ensk blöð kalla ástandið krísuástand en söluferlið hófst í nóvember.