Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al Arabi er liðið varð bikarmeistari í Katar í kvöld.
Liðið mætti Al Sadd í úrslitum og vann glæsilegan sigur.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Omar Al Somah fyrir Al Arabi eftir um klukkutíma leik.
Hamid Ismaeil bætti við marki á 90. mínútu áður en Al Somah innsiglaði 3-0 sigur Al Arabi.
We are the champions 🔴⚪️🏆 pic.twitter.com/x7xmCIqUWb
— Al-Arabi Sports Club (@alarabi_club) May 12, 2023